Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
Vr Myndabanki 2019 1 A 4

Almennar fréttir - 16.10.2019

Ertu á leið í nám?

Félagsmenn VR geta sótt um styrki vegna:

  • Náms – greitt er 90% af starfstengdu námi, námskeiði eða ráðstefnu. Styrkur getur numið allt að 130.000 kr. á hverju almanaksári.
  • Tómstundanámskeiða – greitt er 50% af námskeiðsgjaldi. Styrkur getur numið allt að 30.000 kr. á hverju almanaksári.
  • Ferðakostnaðar vegna starfstengds náms, námskeiðs og ráðstefnu – Greitt er 50% af reikningi. Styrkur getur numið allt að 40.000 kr. á hverju almanaksári.

Ef ekki hefur verið sótt um starfstengdan styrk í þrjú ár í röð er hægt að sækja um uppsafnaðan styrk fyrir 90% af námskeiðsgjaldi, að hámarki 390.000 kr., fyrir einu samfelldu námi.

Félagsmenn geta séð réttindi sín í sjóðum og sótt um rafrænt á Mínum síðum á vr.is