Almennar fréttir - 30.06.2026
Fæðingarstyrkur styður við nýbakaða foreldra
Veronica Sjöfn Garcia er nýbökuð móðir og í hópi fyrstu foreldra innan VR sem fær fæðingarstyrk frá félaginu. Hún hvetur foreldra í VR að nýta sér fæðingarstyrkinn, enda þurfa fjölskyldur aukinn stuðning á þessum viðkvæma tíma. „Ég tel mjög mikilvægt að geta nýtt fæðingarstyrk frá stéttarfélaginu sínu þar sem nýbakaðir foreldrar verða fyrir mikilli tekjuskerðingu í fæðingarorlofi. Það er frábært að VR sé byrjað að veita fæðingarstyrki.“
Foreldrar innan VR hafa kallað eftir því að félagið bjóði fæðingarstyrk og var tillaga stjórnar þar að lútandi samþykkt á aðalfundi í mars. Félagsfólk sækir um fæðingarstyrk á Mínum síðum á vr.is, sjá nánari upplýsingar um styrkinn.
Veronica hefur verið félagi í VR í um átta ár og er viðskiptafræðingur að mennt. Hún stundar einnig nám í landslagsarkitektúr við Landbúnaðarháskóla Íslands og starfar að hluta á fjölskylduveitingastaðnum, Caruso.
„Það kemur sér mjög vel fyrir mig að fá fæðingarstyrk enda er hann góð viðbót við fæðingarorlofsgreiðslurnar,“ segir Veronica. „Á þessum tíma þurfa fjölskyldur meiri stuðning til að brúa bilið fjárhagslega til að geta sinnt barninu og þörfum þess.“
„Ég hvet alla nýbakaða foreldra í VR til að nýta sér fæðingarstyrkinn þar sem hver króna skiptir máli, sérstaklega í fæðingarorlofi. Umsóknarferlið var mjög þægilegt og skilvirkt inni á Mínum síðum.“