Almennar fréttir - 03.08.2026
Í dag er frí og á morgun hefst baráttan að nýju
Þegar frídagur verslunarmanna var haldinn hátíðlegur í fyrsta sinn árið 1894 markaði hann ákveðin þáttaskil. Á þeim tíma átti vinnandi fólk ekkert sumarfrí og helgarfrí voru alls ekki sjálfsögð. Þarna fékk verslunarfólk hins vegar frí og Verslunarmannafélag Reykjavíkur stóð fyrir útiskemmtun með ræðuhöldum, leikjum, lúðraspili og söng. Þetta var 13. september og ekki fylgir sögunni, sem er ágætlega skráð á Vísindavefnum og í ritum Árna Björnssonar, hvort viðrað hafi vel á verslunarfólk, en útigleðin stóð frá hádegi og langt fram á kvöld.
Ölföng og lemonade
Frídagur verslunarmanna rann síðar saman við þjóðhátíðarhöld Reykvíkinga sem skipullögð voru með aðkomu fjölda félagasamtaka. Rétt upp úr þarsíðustu aldamótum skildu þó leiðir þar sem bindindismenn voru komnir í meirihluta í þjóðhátíðarnefndinni og ákváðu að vínveitingar skyldu með öllu bannaðar. Verslunarfólk gat ekki fellt sig við það og hélt sína eigin hátíð þar sem boðið var upp á „ölföng og lemonade“. Samspil verkalýðshreyfingarinnar og bindindishreyfingarinnar er vafalaust efni í áhugaverða stúdíu, en þessar hreyfingar þróast um svipað leyti og einhver voru áhrif þeirrar fyrrnefndu á hina síðarnefndu!
Smám saman varð frídagur verslunarmanna að almennum frídegi fyrsta mánudaginn í ágúst og um miðja síðustu öld tók verslunarmannahelgin á sig þá mynd sem hún hefur í dag. Samhliða varð verkalýðshreyfingunni talsvert ágengt í baráttunni fyrir orlofi til handa vinnandi fólki en enn er samspilið milli vinnu og einkalífs eitt af mikilvægustu viðfangsefnum VR. Orlofssjóður félagsins stendur ekki eingöngu undir myndarlegri uppbyggingu sumarhúsa um allt land, heldur veitir félagsfólki líka styrki í gegnum VR varasjóð til að fara í frí og öðlast tilbreytingu frá hversdeginum. Við tökum þessu sem gefnum hlut, að fá samfleytt frí frá vinnu og geta skipta um umhverfi, en þetta eru réttindi sem einu sinni voru óþekkt og útheimtu mikla baráttu.
Forsendur kjarasamninga bresta
Um þessar mundir markar frídagur verslunarmanna líka ákveðin þáttaskil en að honum loknum tekur hversdagurinn við hjá mörgum þegar sumarleyfum lýkur. Leikskólar opna að nýju og skólabörn fara að huga að nýjum skólavetri. Hjá okkur í VR verður engin lognmolla, enda eru forsendur kjarasamninga að bresta og verður það staðfest með vísitölumælingu undir lok þessa mánaðar. Við höfum lagt þunga áherslu á það að kjarasamningar geti ekki runnið sitt skeið á enda nema að fyrirtæki og stjórnvöld axli sína ábyrgð og standi við loforð sem þau hafa gefið. Þvert á þau loforð hafa verið gríðarlegar verð- og gjaldskrárhækkanir sem kynda undir verðbólgunni, ásamt því að alltof hægt gengur að ná fram merkingarbærum aðgerðum í húsnæðismálum. Aðgerðaleysið getur hæglega leitt til þess að okkur verður nauðugur einn kostur að segja upp kjarasamningum og við höfum þegar hafið undirbúning að kjaraviðræðum.
En í dag er frí! Njótum þess og þökkum fyrri kynslóðum baráttuna fyrir orlofi og lúxus. Sleppum búðarferðum af virðingu við verslunarfólk og sögu þessa dags og mætum sameinuð í baráttuna sem framundan er!
Gleðilegan frídag verslunarmanna!
Halla Gunnarsdóttir
Formaður VR
Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu 1. ágúst 2026.
Myndina af Höllu tók Ragnar Visage.