Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
vr_1.maí_gangan-4.jpg

Almennar fréttir - 04.08.2017

Frídagur verslunarmanna er stórhátíðardagur

Í tilefni af frídegi verslunarmanna þann 7. ágúst viljum við minna á að hann er stórhátíðardagur skv. kjarasamningum VR. Á stórhátíðum er ekki vinnuskylda, nema um slíkt hafi verið samið sérstaklega milli launþega og vinnuveitanda. Fyrir vinnu á frídegi verslunarmanna ber að greiða með stórhátíðarálagi, auk fastra og reglubundinna launa.

Starfsmenn sem hefðu haft vinnuskyldu á þessum mánudegi, eiga rétt á að fá greidda dagvinnu fyrir þennan dag og á það jafnt við um starfsmenn á föstum mánaðarlaunum og starfsmenn sem fá greitt skv. tímakaupi.

Sjá nánar um stórhátíðarálag

Sjá nánar um vinnutíma á frídögum og stórhátíðardögum

VR óskar félagsmönnum til hamingju með daginn !