Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
Vr Fanar Kringlan 1

Almennar fréttir - 31.03.2023

Greitt inn í VR varasjóð

Á aðalfundi VR, sem haldinn var 29. mars sl., var samþykkt að framlag í VR varasjóð verði samtals 905 milljónir kr. fyrir árið 2022.

Varasjóðinn má nýta í ýmis æfingagjöld eins og í líkamsrækt, sund og golfklúbba og við kaup á hjálpartækjum tengdum líkamsrækt eins og hlaupaskóm, golfkylfum og fleiru. Þá er hægt að nýta sjóðinn í ýmsa læknistengda þjónustu eins og tannlækni, sálfræðikostnað, laseraðgerðir og fleira. Greiðslur úr sjóðnum eru almennt staðgreiðsluskyldar og staðgreiðsla dregin af fjárhæð fyrir útborgun.

Þrjár undantekningar eru á staðgreiðsluskyldum greiðslum:

  • Líkamsrækt og endurhæfing sem er sambærileg og önnur íþróttaiðkun að hámarki kr. 71.500 á ári (m.v. árið 2023)
  • Greiðsla á gistikostnaði í orlofi að hámarki kr. 67.000 á ári. Þetta á einungis við um greiðslu fyrir gistingu, s.s. orlofshús, hótel eða gistiheimili.
  • Starfstengt nám, styrkir úr sjóðnum vegna starfsnáms.

Nánari upplýsingar um varasjóðinn má sjá hér.

Athugið að endurgreiðsla hvers VR félaga fer eftir réttindainneign hans. Stöðu og umsóknir í VR varasjóð má finna á Mínum síðum.