Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
Midhusaskogur_37.jpg

Almennar fréttir - 13.12.2018

Hvert ætlar þú í sumar?

Opnað verður fyrir bókanir á orlofshúsum VR árið 2019 og fram á mitt ár 2020 sem hér segir:

Þann 8. janúar 2019 kl. 19:00 verður opnað fyrir bókanir orlofshúsa sumarið 2019 (tímabilið 2. júní til 31. ágúst).
Þann 10. janúar 2019 kl. 10:00 verður opnað fyrir bókanir orlofshúsa fyrir þá sem leigðu orlofshús sumarið 2016, 2017 eða 2018.
Þann 15. janúar 2019 kl. 10:00 verður opnað fyrir bókanir sem ná yfir tímabilið 31. ágúst 2019 til 31. maí 2020.
Hægt verður að bóka orlofshús rafrænt á Mínum síðum á vr.is. Einnig verður skrifstofa VR opin að kvöldi 8. janúar og geta þeir félagsmenn sem ekki bóka rafrænt komið þangað. Einnig er tekið við bókunum í þjónustuveri VR í síma 510 1700.