Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
Midhusaskogur_37.jpg

Almennar fréttir - 28.12.2022

Opnað fyrir bókanir orlofshúsa 9. janúar

Opnað verður fyrir bókanir á orlofshúsum VR sumarið 2023 og fram á mitt ár 2024 sem hér segir:

Þann 9. janúar 2023 kl. 19:00 verður opnað fyrir bókanir orlofshúsa sumarið 2023 (tímabilið 2. júní til 1. september 2023).

Þann 11. janúar 2023 kl. 10:00 verður opnað fyrir bókanir orlofshúsa fyrir þá sem leigðu orlofshús sumarið 2020, 2021 eða 2022.

Þann 18. janúar 2023 kl. 10:00 verður opnað fyrir bókanir sem ná yfir tímabilið 1. september 2023 til 31. maí 2024.

Hægt verður að bóka orlofshús rafrænt á Mínum síðum á vr.is. Einnig verður skrifstofa VR opin að kvöldi 9. janúar og getur félagsfólk sem ekki bókar rafrænt komið þangað. Enn fremur er tekið við bókunum í þjónustuveri VR í síma 510 1700.