Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
18-1927_1mai-vr_is-frettamynd-01.jpg

Almennar fréttir - 30.04.2018

Páll Óskar og fleiri hita upp fyrir kröfugöngu á 1. maí!

VR hitar upp fyrir kröfugöngu með léttu skemmtiskokki og hátíðardagskrá fyrir alla fjölskylduna. Dagskráin hefst kl. 11:00 og munu bæði Páll Óskar og Friðrik Dór halda uppi fjörinu á Klambratúni.

Jónsi í Svörtum fötum og Eva Ruza hita mannskapinn upp fyrir fjölskylduhlaupið en hlaupið er 1,5 km leið í kringum Klambratún. Þátttaka er ókeypis og fá allir þátttakendur í fjölskylduhlaupinu verðlaunapening.

Verkalýðskaffi og kröfuganga í Reykjavík
Í Reykjavík verður safnast saman fyrir kröfugönguna á Hlemmi kl. 13:00 og leggur gangan af stað kl. 13:30. VR verður með sitt árlega verkalýðskaffi fyrir félagsmenn sína í anddyri Laugardalshallar kl. 15:00 að loknum útifundi á Ingólfstorgi.

Vertu með okkur á morgun!