Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
Sal 1920X1080

Almennar fréttir - 22.11.2022

Rafrænn hádegisfyrirlestur – Sálrænt öryggi í teymum

VR býður félagsfólki sínu á áhugaverðan fyrirlestur fimmtudaginn 24. nóvember nk. 12:00- 13:00.

Kristrún Anna Konráðsdóttir er sjálfstætt starfandi teymis- & markþjálfi. Hún hefur ástríðu fyrir því að hjálpa fólki og teymum að takast á við og leiða breytingar í síbreytilegu og flóknu umhverfi dagsins í dag. Kristrún starfaði áður sem verkefnastjóri. Hún hefur þjálfað fjöldamörg teymi í átt að meiri árangri og gleði, leitt árangursrík tækniverkefni og í dag er hún einnig vottaður “Fearless Organization Practitioner” og sérhæfir sig í mælingum og uppbyggingu sálræns öryggis í teymum.

Fyrirlesturinn verður einungis aðgengilegur rafrænt. Honum verður streymt á auglýstum tíma, opinn út daginn á hlekknum en fer svo inn á Mínar síður VR og verður þar aðgengilegur í 30 daga.

Þessi fyrirlestur verður með enskum texta.