Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
Jolaball Frettamynd

Almennar fréttir - 18.11.2022

Miðasala á jólaball VR hefst í dag

Jólaball VR verður haldið laugardaginn 3. desember nk. kl. 13.00 í Flóa í Hörpu. Leikhópurinn Lotta mun halda utan um skemmtunina og dansað verður í kringum jólatréð. Öll börn fá glaðning frá jólasveininum.

Miðasala fer fram á Orlofsvef VR á Mínum síðum. Miðinn á ballið kostar 500 kr. bæði fyrir fullorðin og börn.