Vefspjall
Hleður upp...
1Mai25vrcover2

Almennar fréttir - 17.04.2026

Sjáumst á 1. maí 2026

VR hvetur allt félagsfólk til þess að fjölmenna í kröfugöngur og á útifundi í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi verkalýðsins þann 1. maí.

Fjölskylduhlaup VR á Klambratúni

Í Reykjavík verður hitað upp fyrir kröfugöngu með léttu hlaupi og dagskrá fyrir alla fjölskylduna á Klambratúni. Söngvarinn og skemmtikrafturinn Jónsi stýrir dagskránni sem hefst kl. 11:30. Söngkonan Hildur Magnúsdóttir tekur nokkur lög.

Íþróttaálfurinn hitar upp fyrir hlaupið sem er 1,5 km leið í kringum túnið. Þátttaka er ókeypis og allir þátttakendur fá verðlaunapening. 

Boðið verður upp á ostaslaufur, safa og gos og Sirkus Íslands verður á svæðinu.

Öll velkomin!

Kröfuganga og verkalýðskaffi í Reykjavík

Í Reykjavík verður safnast saman fyrir kröfugönguna á Skólavörðuholti kl. 13:00 en við munum ganga þangað frá Klambratúni með Jónsa og Lúðrasveit verkalýðsins í fararbroddi. Kröfugangan leggur svo af stað kl. 13:30. 

Útifundur hefst á Ingólfstorgi um kl. 14:00 en ræðumaður dagsins er Halla Gunnarsdóttir, formaður VR. Sjá dagskrá hér.

VR verður með sitt árlega verkalýðskaffi fyrir félagsfólk í anddyri Laugardalshallar kl. 14:30 að loknum útifundinum. 

Nánari dagskrá á öðrum félagssvæðum VR verður auglýst síðar.

Sjáumst 1. maí!