Vefspjall
Hleður upp...
Vr Fanar 1

Almennar fréttir - 20.04.2026

Innviðafélag óhagstæð leið til fjármögnunar samgöngumannvirkja 

VR fagnar stefnu ríkisstjórnarinnar að ráðast í uppbyggingu samgönguinnviða en gerir hins vegar athugasemdir við nokkur atriði í frumvarpi stjórnvalda um stofnun innviðafélags. VR bendir á að stofnun innviðafélags sé óhagstæð leið til fjármögnunar slíkrar uppbyggingar, framkvæmdir slíks félags séu líklegar til að vera kostnaðarsamari fyrir almenning en framkvæmdir á vegum ríkisins. 

VR gagnrýnir jafnframt að framkvæmdir sem falla undir innviðafélagið samkvæmt frumvarpinu séu ekki tilgreindar sérstaklega. Skilja megi frumvarpið svo að nýtt innviðafélag geti tekið að sér hvaða samgönguframkvæmdir sem er, á grundvelli samnings við ráðherra.  

Þá gerir VR athugasemd við að í frumvarpinu sé hugtakið „ráðandi hlutur“ ekki skilgreint í ákvæði frumvarpsins sem heimilar hlutafjáraukningu með þátttöku einkafjárfesta, né sé þar að finna takmarkanir á því hverjir megi kaupa sem opnar fyrir fjárfestingu erlendra aðila. 

Hvað varðar veggjöld sem félaginu verður heimilað að innheimta samkvæmt frumvarpinu, gerir VR m.a. athugasemd við að ekki sé gert ráð fyrir hámarkstíma slíkrar gjaldtöku en það er nauðsynlegt til að tryggja að almenningur sé ekki að borga lengur en tekur að greiða upp viðkomandi framkvæmd. 

Sjá umsögn VR við frumvarp um innviðafélag í heild sinni hér. 

Sjá frumvarpið í heild sinni hér.