Vefspjall
Hleður upp...
3F2A9762

Almennar fréttir - 20.08.2026

Stýrivextir í kastljósinu á opnum fundi VR, LÍV og Fagfélaganna

Fjölmenni var á opnum fundi VR, LÍV og Fagfélaganna um samspil stýrivaxta og verðbólgu miðvikudaginn 19. ágúst. Ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans um að hækka stýrivexti í 8%, sem tilkynnt var skömmu áður en fundurinn hófst, setti svip sinn á hann og umræður þátttakenda. Fundinum var jafnframt streymt á visir.is og mbl.is.

Jaya Sood, hagfræðingur hjá New Economics Foundation í Bretlandi, flutti erindi á fundinum um kosti og galla stýrivaxta sem stjórntæki til að ná tökum á verðbólgu. Í erindi sínu spurði Jaya hvort háir stýrivextir væru alltaf besta svarið, og í stuttu máli var svar hennar nei.

Jaya benti á að til séu fleiri tæki og tól til að ná niður verðbólgunni en hækkun stýrivaxta, samvinna ríkis, aðila vinnumarkaðar og fyrirtækjanna í því ferli geti skipt sköpum. Launafólk hafi borið byrðar hárra vaxta hingað til í formi lágra launahækkana og aukins atvinnuleysis, en nú þurfi bæði ríkið og seðlabankinn að axla sína ábyrgð. Háir vextir eru bitlaust verkfæri í þeirri stöðu sem íslenskt efnahagslíf er í, sagði Jaya, þeir gagnist vel gegn eftirspurnardrifinni verðbólgu en illa gegn verðbólgu sem drifin er áfram af bágri stöðu á húsnæðismarkaði, verðhækkunum og ytri áhrifum. Hækkun stýrivaxta sé val, ekki náttúrulögmál, og hækkun bankans hafi ekki verið rétta skrefið í þeim aðstæðum sem nú eru uppi.

Í pallborðsumræðum var rætt um áhrif stýrivaxta á fólk og fyrirtæki en Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, ræddi þar við Ásgeir Brynjar Torfason, ritstjóra Vísbendingar, Jón Sigurðsson, forstjóra Stoða og Tómas Brynjólfsson, varaseðlabankastjóra fjármálastöðugleika. Skiptar skoðanir voru um hvort stýrivextir væru heppilegasta leiðin til að vinna bug á verðbólgunni og ljóst var á umræðunni að háir stýrivextir séu farnir að há bæði fólki og fyrirtækjum.

Sjá má fundinn í heild sinni hér.