Vefspjall
Hleður upp...
Test3

Almennar fréttir - 14.08.2026

VR skipar viðræðunefnd

Stjórn VR samþykkti á fundi sínum þann 13. ágúst að skipa viðræðunefnd vegna kjaraviðræðna sem standa fyrir dyrum í haust. 

Í henni sitja Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, Birgitta Ragnarsdóttir, Jónas Yngvi Ásgrímsson og Tómas Gabríel Benjamín.  Enn fremur samþykkti stjórn að bjóða fulltrúa Landssambands ísl. verzlunarmanna aðild að nefndinni.  

Samkvæmt lögum VR fer stjórn félagsins með hlutverk samninganefndar sem heldur á  samningsumboði félagsins við kjarasamningagerð. Stjórnin skipar viðræðunefnd sem kemur fram fyrir hönd samninganefndar VR í viðræðum við SA og Félag atvinnurekenda. Viðræðunefnd starfar í umboði stjórnar og hefur að auki það hlutverk að setja fram kröfur félagsins gagnvart viðsemjendum og móta áherslur og forgangsröðun í undirbúningi kjaraviðræðna.