Almennar fréttir - 21.08.2026
Vilt þú sitja ASÍ þing fyrir VR?
47. þing ASÍ verður haldið dagana 14. - 16. október 2026 á Hótel Hilton Nordica í Reykjavík. Yfirskrift þingsins er Framtíð vinnu og verkalýðsbaráttu. Dagskrá og þingskjöl má finna á þingvef ASÍ.
Ákveðið hefur verið að viðhafa listakosningu um fulltrúa VR á þingið og auglýsir VR nú eftir félagsfólki sem vill gefa kost á sér á framboðslista félagsins. Allt fullgilt félagsfólk getur boðið sig fram. Ef þú vilt gefa kost á þér sem fulltrúi VR, vinsamlega sendu nafn og kennitölu á netfangið frambod@vr.is fyrir kl. 12:00 á hádegi þann 28. ágúst.
Þar sem fjöldi er takmarkaður er ekki víst að öll sem bjóða sig fram muni hljóta sæti á framboðslista félagsins.