Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
Almennar fréttir - 05.06.2018
Sumarið er tíminn!
Félagsmönnum VR standa til boða fjölmargir spennandi möguleikar í orlofsmálum. Auk orlofshúsa eru í boði gjafabréf í ferðir af ýmsu tagi, kort sem opna skemmtilega valkosti, aðgangur að tjaldsvæði í sumar og niðurgreiðsla tjaldvagna. Hér að neðan er stiklað á stóru á því sem í boði er.
- Tjaldsvæði í Miðhúsum verður opið fyrir félagsmenn í sumar. Það er allt hið glæsilegasta og mjög fjölskylduvænt. Á svæðinu er góð aðstaða fyrir tjöld, tjaldvagna, húsbíla og fellihýsi með aðgangi að rafmagni á mjög hagstæðu verði. Opnunartími verður auglýstur síðar á vef VR.
- Tjaldvagnaútleiga er niðurgreidd fyrir félagsmenn. VR félagar geta tekið á leigu tjaldvagna, fellihýsi eða hjólhýsi af viðurkenndum leiguaðila og fengið niðurgreiðslu gegn framvísun kvittunar. Niðurgreiðslan er 5.000 kr. á nótt, að hámarki sex nætur fyrir hvert orlofstímabil.