Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
IMG 1366

Almennar fréttir - 19.10.2019

Þingi verslunarmanna lokið

Nauðsynlegt er að auka atvinnulýðræði til þess að bregðast við þeim breytingum sem við nú stöndum frammi fyrir vegna þess sem nefnt hefur verið einu nafni fjórða iðnbyltingin. Ísland stendur langt að baki þeim löndum sem við viljum bera okkur saman við að þessu leyti og teljum við tíma til kominn að við stöndum þeim jafnfætis. Þetta er meðal þess sem kemur fram í ályktun sem samþykkt var í dag á velheppnuðu 31. þingi Landssambands íslenzkra verzlunarmanna sem lauk á Akureyri í dag. Helstu málefni þingsins voru atvinnulýðræði, stytting vinnuvikunnar og fjórða iðnbyltingin.

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, var kjörinn formaður Landssambands íslenzkra verzlunarmanna en engin mótframboð bárust.

Ályktun um atvinnulýðræði
- Starfsfólk í stjórnir fyrirtækja

31. þing Landssambands íslenzkra verzlunarmanna telur að nauðsynlegt sé að auka atvinnulýðræði til þess að bregðast við þeim breytingum sem við nú stöndum frammi fyrir vegna þess sem nefnt hefur verið einu nafni fjórða iðnbyltingin. Ísland stendur langt að baki þeim löndum sem við viljum bera okkur saman við að þessu leyti og teljum við tíma til kominn að við stöndum þeim jafnfætis. Vinna hefur nú þegar hafist innan aðildarfélaga LÍV við að móta stefnu og hugmyndir um framkvæmd atvinnulýðræðis hérlendis. Er þetta gert til þess að tryggja að afrakstur tækniframþróunar skili sér til launafólks og samfélagsins alls.