Almennar fréttir - 02.10.2026
Aðalfundur deildar leiðsögufólks í VR
Aðalfundur deildar leiðsögufólks í VR 2026 verður haldinn miðvikudaginn 21. október nk. kl. 19:00 í fundarsal VR á 9. hæð í Húsi verslunarinnar. Fundurinn verður jafnframt í boði á Teams. Léttar veitingar verða á staðfundi. Vinsamlega skráið ykkur á fundinn fyrir kl. 12:00 á hádegi á fundardegi – sjá hér.
Allar kosningar á fundinum verða rafrænar og fundargögn sömuleiðis. Mikilvægt er að öll sem mæta á fundinn hafi meðferðis viðeigandi búnað (tölvu eða snjalltæki) til þess að geta tekið þátt í kosningum og kynnt sér fundargögn og framboð. Hlekkur á fjarfund verður sendur út samdægurs.
Dagskrá
- Kosinn fundarstjóri
- Kosinn ritari
- Skýrsla stjórnar um störf deildarinnar fyrir liðið starfsár
- Breytingar á starfsreglum
- Frambjóðendur til formanns kynna sig
- Kjör formanns
- Frambjóðendur til stjórnarmanna kynna sig
- Kjör stjórnarmanna
- Fjárhagsáætlun deildarinnar lögð fram
- Önnur mál
Framboð til formanns og stjórnar
Á fundinum verður kosið annars vegar til tveggja sæta í stjórn og hins vegar til formanns. Framboð þurfa að hafa borist í síðasta lagi kl. 12:00 á hádegi miðvikudaginn 14. október á netfangið guide@vr.is. Kjörgengi hefur fullgilt félagsfólk í deildinni samkvæmt 3. grein í starfsreglum deildarinnar.
Greint verður frá nöfnum frambjóðenda á síðu deildar leiðsögufólks á vefsíðu VR, vr.is, eftir að framboðsfresti lýkur. Frambjóðendum býðst að kynna sig og áherslur sínar á fundinum áður en gengið verður til kosninga.
Breytingar á starfsreglum
Á dagskrá fundarins eru tillögur að breytingum á starfsreglum deildarinnar. Tillögur að breytingum á starfsreglum þurfa að hafa borist til stjórnar deildarinnar sjö dögum fyrir aðalfund eða í síðasta lagi kl. 12:00 miðvikudaginn 14. október á netfangið guide@vr.is.