Vefspjall
Hleður upp...
Kvennafri Frettamynd Copy

Almennar fréttir - 24.10.2026

Til hamingju með daginn – höldum baráttunni áfram!

Í dag, 24. október 2026, er 51 ár frá því íslenskar konur lögðu niður bæði launuð og ólaunuð störf til að krefjast jafnréttis á við karla á vinnumarkaði. Tugþúsundir kvenna fylltu miðbæ Reykjavíkur og þjóðfélagið lamaðist. Konur hafa nokkrum sinnum síðan endurtekið leikinn, lagt niður störf, fjölmennt á útifundi og krafist jafnréttis.

Ýmislegt hefur áunnist en baráttunni er langt í frá lokið. Bakslag í réttindabaráttu kvenna er staðreynd. Viðhorf til stöðu kvenna á vinnumarkaði einkennist í auknum mæli af vangaveltum um hvort ekki sé nú nóg komið, hvort konur ætli sér að taka yfir heiminn. Aukning í kynbundnu ofbeldi, ójöfn verkaskipting inni á heimilum, viðvarandi launamunur kynjanna og fjárhagslegt ósjálfstæði margra kvenna er svarið við því. Nei það er ekki nóg komið, við höldum baráttunni áfram þangað til kynin standa jafnfætis á vinnumarkaði og samfélaginu öllu.