Vefspjall
Hleður upp...
Vr Frettamynd Bladid2tbl2026

Almennar fréttir - 28.10.2026

VR blaðið er komið út!

Annað tölublað ársins 2026 af VR blaðinu er komið út og er því dreift til félagsfólks í pósti. Um þessar mundir eru 70 ár síðan VR blaðið var gefið út í fyrsta sinn og rifjum við upp umfjöllunarefni blaðsins í gegnum árin og fyrirsagnir liðinna tíma. 

Þann 8. október sl. náðist samkomulag við atvinnurekendur vegna forsendubrests kjarasamninga og er farið yfir aðdragandann og innihald þess í blaðinu. 

Þegar rætt er um gervigreind og vinnumarkaðinn snýst umræðan oft um hvaða störf muni hverfa með aukinni sjálfvirknivæðingu. Hagfræðingum og öðrum sérfræðingum greinir þó verulega á um hverjar líklegustu sviðsmyndirnar séu í þeim efnum. Victor Karl Magnússon, sérfræðingur hjá VR og doktorsnemi við Oxford háskóla fjallar í blaðinu um gervigreind og sjálfræði starfsfólks.

Í blaðinu er farið yfir réttindi félagsfólks við uppsögn og fjallað um hópuppsagnir. 

Leiðara formanns, viðtal við trúnaðarmanninn, krossgátuna ásamt fleiri föstum liðum má að sjálfsögðu finna eins og venjulega í blaðinu.

Við minnum félagsfólk á að það getur afþakkað blaðið í prentaðri útgáfu og skráð sig fyrir rafrænu eintaki á Mínum síðum.