Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
Midhusaskogur_15.jpg

Almennar fréttir - 03.01.2017

Um bókanir orlofshúsa

Við viljum minna félagsmenn VR á að til að bóka orlofshús félagsins þarf að skrá sig inn á Mínar síður, annað hvort með Íslykli eða rafrænum skilríkjum.

Opnað verður fyrir bókanir á orlofshúsum VR árið 2017 og fram á mitt ár 2018 sem hér segir:

  • Fimmtudaginn 5. janúar 2017 kl.19.00 verður opnað fyrir bókanir orlofshúsa 27. maí – 2. september hjá þeim sem hafa ekki fengið úthlutað orlofshúsi sl. þrjú sumur.
  • Föstudaginn 6. janúar 2017 kl. 14.00 verður opnað fyrir bókanir orlofshúsa fyrir þá sem leigðu orlofshús sumarið 2014, 2015 eða 2016.
  • Fimmtudaginn 12. janúar 2017 kl. 10.00 verður opnað fyrir bókanir orlofshúsa tímabilið 1. september 2017 - 1. júní 2018.

Skrifstofa VR í Reykjavík verður opin að kvöldi 5. janúar frá kl. 18:50 – 20:30 og geta félagsmenn, sem ekki bóka á vefnum, komið á skrifstofu félagsins til að bóka. Þá verður einnig tekið við bókunum í síma 510 1700 frá kl. 19.00 þann sama dag.

Athugið að innskráning á Mínar síður VR frá kl. 14:00 - 24:00 fimmtudaginn 5. janúar leiðir notanda beint á orlofsvef VR en ekki verður hægt að sækja um aðra þjónustu hjá VR en að bóka orlofshús. Er þetta gert til þess að draga úr álagi á kerfið á meðan bókanir orlofshúsa standa yfir. Biðjumst við velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.