Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
mynd105.JPG

Almennar fréttir - 16.03.2018

VR leggur fram tillögu á aðalfundi N1 um að allir starfsmenn fái sömu kjarahækkun og forstjóri félagsins

Stjórn VR hefur samþykkt að leggja fram tillögu á aðalfundi N1 um að öllum starfsmönnum N1 skuli tryggð sama kjarahækkun og forstjóri félagsins fékk en laun hans voru 5,8 m.kr. á mánuði á síðasta ári og hækkuðu þau um 20,6% á milli ára eða um rúma milljón krónur á mánuði. Sem hluthafi í N1 getur stjórn VR ekki setið aðgerðalaus hjá þegar N1 greiðir forstjóra fyrirtækisins 20,6% hækkun í kjörum milli ára.

Ef fyrirtækið er svo vel rekið og í svo miklum blóma að það telji sér fært að skammta þeim sem stýrir því svo vel væri eðlilegt að það umbuni þeim sem sjálf verkin vinna með sama hætti. Það er sanngjarnt og eðlilegt. Því hefur stjórn VR ákveðið að leggja fram eftirfarandi tillögu á komandi aðalfundi N1 nk. mánudag:

„Aðalfundur N1, haldinn mánudaginn 19. mars að Dalvegi 10-14 Kópavogi, ályktar að öllum starfsmönnum N1 skuli tryggð sama kjarahækkun og forstjóri félagsins fékk á árinu 2017. Laun forstjóra voru á árinu 2017 70,4 m.kr., eða 5,8 m.kr. á mánuði, og hækkuðu þau um 20,6% milli áranna 2016 og 2017.“

Stærstu eigendur N1 eru lífeyrissjóðir launafólks og það hlýtur því að vera eðlileg krafa að einmitt hið duglega launafólk sem starfar hjá N1 skuli einnig njóta ávaxtanna, sérstaklega þegar svo vel gengur í starfsemi fyrirtækisins að það telur sæmandi að greiða forstjóranum sambærileg laun og launahæsta bankastjóra landsins