Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
Myndin 1200x628.png

Almennar fréttir - 11.10.2018

VR óskar eftir orlofshúsum

VR óskar eftir að leigja vönduð sumarhús eða orlofsíbúðir til framleigu fyrir félagsmenn sína. Leitað er eftir húsnæði á landsbyggðinni fyrir næsta sumar.

Áhugasamir sendi upplýsingar á vr@vr.is fyrir 20. nóvember 2018.

Eftirfarandi upplýsingar þurfa að fylgja:

  • Lýsing á eign og því sem henni fylgir
  • Ástand íbúðar og staðsetning
  • Stærð, fjöldi svefnplássa og byggingarár
  • Lýsing á möguleikum til útivistar og afþreyingar í næsta nágrenni

    Öllum tilboðum verður svarað.