Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
myndin-1200x628.png

Almennar fréttir - 11.11.2022

VR óskar eftir orlofshúsum

VR óskar eftir vönduðum sumarhúsum eða orlofsíbúðum á leigu til framleigu fyrir félagsfólk sitt. Við leitum að húsnæði á landsbyggðinni fyrir næsta sumar.

Áhugasöm sendi upplýsingar á vr@vr.is fyrir 10. desember 2022. Nauðsynlegt er að góðar ljósmyndir og lýsing á umhverfi fylgi með.

Öllum tilboðum verður svarað.

Eftirfarandi upplýsingar þurfa að fylgja tilboði:

  • Lýsing á eign og því sem henni fylgir
  • Ástand eignar og staðsetning
  • Stærð, fjöldi svefnplássa og byggingarár
  • Lýsing á möguleikum til útivistar og afþreyingar í næsta nágrenni