Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
1mai-2013.jpg

Almennar fréttir - 29.04.2019

1. maí á Klambratúni

Í Reykjavík verður hitað upp fyrir kröfugöngu með léttu skemmtiskokki og hátíðardagskrá fyrir alla fjölskylduna. Dagskráin hefst kl. 11:30 og munu Jói P og Króli ásamt Wally frá Sirkus Íslands halda uppi fjörinu á Klambratúni.

Jónsi í Svörtum fötum, Íþróttaálfurinn og Solla stirða hita mannskapinn upp fyrir fjölskylduhlaupið en hlaupið er 1,5 km leið í kringum Klambratún. Þátttaka er ókeypis og fá allir þátttakendur í fjölskylduhlaupinu verðlaunapening.

Safnast verður saman fyrir kröfugönguna á Hlemmi kl. 13:00 og leggur gangan af stað kl. 13:30 og endar á útifundi á Ingólfstorgi. VR verður með sitt árlega verkalýðskaffi fyrir félagsmenn sína í anddyri Laugardalshallar kl. 15:00 að loknum útifundi á Ingólfstorgi.

Sjá yfirlit yfir dagskrá á félagssvæðum VR hér.

VR hvetur alla félagsmenn til þess að fjölmenna í kröfugöngur og á útifundi sem verða haldnir í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi verkalýðsins þann 1. maí næstkomandi.