Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
vr_logo-2.jpg

Almennar fréttir - 29.04.2019

Vegna orlofsuppbótar og orlofsuppbótarauka

VR vill árétta að orlofsuppbót og orlofsuppbótarauka skuli greiða eigi síðar en 2. maí 2019. Orlofsuppbót skv. kjarasamningum VR er kr. 50.000 fyrir árið 2019 m.v. fullt starf. Á árinu 2019 greiðist sérstakt álag á orlofsuppbót kr. 26.000 og er uppbótin því kr. 76.000 fyrir 2019 m.v. fullt starf.

Orlofsuppbót er föst tala og tekur ekki launabreytingum skv. öðrum ákvæðum kjarasamnings. Skattar og skyldur, félagsgjöld og lífeyrissjóðsiðgjald greiðast af orlofsuppbót. Orlof greiðist ekki ofan á orlofsuppbótina.