Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
18-1927_1mai-vr_is-frettamynd-01.jpg

Almennar fréttir - 24.04.2018

Alþjóðlegur baráttudagur verkalýðsins – Vertu með!

VR hvetur alla félagsmenn til þess að fjölmenna í kröfugöngur og á útifundi sem verða haldnir í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi verkalýðsins þann 1. maí næstkomandi.

Fjölskylduhlaup VR á Klambratúni

Í Reykjavík verður hitað upp fyrir kröfugöngu með léttu skemmtiskokki og hátíðardagskrá fyrir alla fjölskylduna. Dagskráin hefst kl. 11:00 og munu bæði Páll Óskar og Friðrik Dór halda uppi fjörinu á Klambratúni.

Jónsi í Svörtum fötum og Eva Ruza hita mannskapinn upp fyrir Fjölskylduhlaupið en hlaupið er 1,5 km leið í kringum Klambratún. Þátttaka er ókeypis og fá allir þátttakendur í fjölskylduhlaupinu verðlaunapening.

Verkalýðskaffi og kröfuganga í Reykjavík

Í Reykjavík verður safnast saman fyrir kröfugönguna á Hlemmi kl. 13:00 og leggur gangan af stað kl. 13:30. VR verður með sitt árlega verkalýðskaffi fyrir félagsmenn sína í anddyri Laugardalshallar kl. 15:00 að loknum útifundi á Ingólfstorgi.

Kröfuganga á Selfossi

Kröfuganga fer frá Austurvegi 56 kl. 11:00 við undirleik Lúðrasveitar Selfoss en gengið verður að hótel Selfossi þar sem skemmtun fer fram. Félagar úr Sleipni fara fyrir göngunni á hestum.

Hátíðardagskrá á Akranesi

Kröfuganga fer frá Kirkjubraut 40 kl. 14:00 og leikur Skólahljómsveit Akraness undir. Að göngu lokinni hefst hátíðardagskrá í sal Verkalýðsfélags Akraness á 3. hæð Kirkjubrautar 40.

Baráttufundur í Vestmannaeyjum

Baráttufundur og kaffisamsæti verður haldið í Alþýðuhúsinu sem hefst kl. 14:30. Guðmundur Þ.B. Ólafsson flytur 1. maí ávarp og nemendur í Tónlistarskóla Vestmannaeyja sjá um tónlistina.