Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
Dagatal2023

Almennar fréttir - 09.12.2022

Dagatal VR 2023

VR gefur út dagatal fyrir árið 2023. Dagatalið er ætlað félagsfólki VR en auk hefðbundinna rauðra daga eru merktar inn á dagatalið mikilvægar upplýsingar fyrir VR félaga, t.d. eins og hvenær opnað verður fyrir bókanir orlofshúsa og hvenær aðalfundur VR verður haldinn.

Dagatölin liggja frammi á skrifstofum VR í Reykjavík, á Akranesi, Egilsstöðum, Selfossi, í Vestmannaeyjum og í Reykjanesbæ á meðan birgðir endast.