Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
Jólahlaðborð Clean Mynd Blá Jóla

Almennar fréttir - 07.12.2022

VR styður hjálparstarf um hátíðirnar

VR styrkir starf hjálparsamtaka um hátíðirnar eins og undanfarin ár. Í ár var ákveðið að styrkja Hjálparstarf kirkjunnar um tvær milljónir króna og Rauða kross Íslands um tvær milljónir króna. Auk þess verða deildir Rauða kross Íslands á Akranesi, Austurlandi, Suðurlandi og í Vestmannaeyjum styrktar um 250.000 kr. hver og Velferðarsjóður Suðurnesja um 750.000 kr. Til viðbótar verða úthlutaðir í ár styrkir til Fjölskylduhjálpar Íslands á Suðurnesjum, Mæðrastyrksnefndar og Samferða góðgerðasamtaka.

Félagið vill þannig leggja sitt af mörkum til að aðstoða þau sem helst þurfa á stuðningi að halda yfir hátíðirnar. Með þessu fjárframlagi fylgir ósk um gleðilega hátíð og farsæld á komandi ári, ekki síst til þeirra sem glíma við erfiðleika og veikindi.