Vefspjall
Hleður upp...
Egg Copy

Almennar fréttir - 03.06.2026

Eggið eða hænan?

Takið daginn frá! Opinn fundur um verðbólgu, verðlag og laun 11. júní

Blikur eru á lofti í efnahagsmálum og allt bendir til þess að forsendur kjarasamninga bresti í haust. Verðbólga hefur farið vaxandi, atvinnuleysi aukist og stýrivextir hækkað. Drifkraftar verðbólgu eru margir og samsetning hennar flókin en eigi að nást árangur í baráttunni er mikilvægt að auka skilning á eðli og orsökum hennar.

VR, LÍV og Fagfélögin efna til opins fundar fimmtudaginn 11. júní um verðbólguna, verðlag og laun. Á fundinum fjallar Viðar Ingason hagfræðingur VR um samspil verðbólgu og launa og Vilhjálmur Hilmarsson hagfræðingur Visku fjallar um dýrasta land í heimi, Ísland. Í pallborði sitja auk Viðars og Vilhjálms þau Henný Hinz aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ og Páll Gunnar Pálsson forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, er fundarstjóri og stýrir pallborðinu. Jakob Tryggvason formaður RSÍ flytur opnunarávarp.

Fundurinn sem ber yfirskriftina Eggið eða hænan verður haldinn í sal Fagfélaganna, að Stórhöfða 31 – gengið er inn bakatil. Húsið opnar kl. 8:00 með morgunverði, dagskrá hefst kl. 8.30 og lýkur kl. 9.45.

Skráning hér.