Vefspjall
Hleður upp...
Maifrett

Almennar fréttir - 27.05.2026

Við krefjumst þess að bankarnir dragi vaxtahækkanir til baka

VR, LÍV og Fagfélögin fordæma vaxtahækkanir viðskiptabankanna sem tilkynntar voru fyrir helgi. Viðskiptabankarnir skiluðu hátt í 100 milljarða króna hagnaði á síðasta ári eftir skatta. Það samsvarar yfir 320 þúsund krónum á hvern fullorðinn landsmann. Þarna er svigrúm og þarna liggur samfélagsleg ábyrgð bankanna. Bankarnir eiga að taka á sig hluta af byrðum efnahagsástandsins.

Arðsemi eiginfjár allra bankanna hefur aukist jafnt og þétt og vaxtamunur eykst sömuleiðis. Bankarnir hagnast á stöðunni en á sama tíma þrengir enn frekar að heimilum landsins. Nú er svo komið að fjórir af hverjum tíu foreldrum á vinnumarkaði eiga erfitt með að ná endum saman og geta ekki mætt óvæntum útgjöldum upp á 100 þúsund krónur. Með öðrum orðum er fullvinnandi fólk í þeirri stöðu að ef þvottavélin bilar nær það ekki endum saman um mánaðamótin og jafnvel ekki þau næstu heldur.

Bankarnir eru stórir aðilar innan atvinnulífsins sem lofaði að við værum öll á sama báti þegar kæmi að baráttunni við verðbólgu. Launafólk mun ekki sætta sig við að bankarnir eða atvinnulífið hlaupist undan merkjum. Við krefjumst þess að vaxtahækkanir síðustu daga verði dregnar til baka, með það að markmiði að kjarasamningar haldi. Stjórnendur bankanna þurfa að sýna almenningi að þeir ætli að axla ábyrgð á ástandinu með launafólki.