Vefspjall
Hleður upp...
Vr Fyrirtaeki Arsins 2026

Almennar fréttir - 13.05.2026

Fyrirtæki ársins kynnt í Hörpu

Niðurstöður í könnun VR á Fyrirtæki ársins 2026 voru kynntar við hátíðlega athöfn í Hörpu í dag, miðvikudaginn 13. maí. Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, afhenti viðurkenningar til fyrirtækja í þremur stærðarflokkum.

Þau fyrirtæki sem skáru fram úr og hljóta nafnbótina Fyrirtæki ársins 2026 eru:

Í flokki stórra fyrirtækja, þar sem starfa 70 eða fleiri:

APRÓ
Garri 
Travel Connect 

Í flokki meðalstórra fyrirtækja, þar sem starfa 30-69:

Hringdu
Orkan 
Syndis

Í flokki lítilla fyrirtækja, þar sem starfa færri en 30:

Kjólar & Konfekt
Rekstrarfélag Kringlunnar
Tryggja 

Könnun VR á Fyrirtæki ársins er stærsta vinnumarkaðsrannsókn á Íslandi og á sér nær þrjátíu ára sögu. Gallup lagði könnunina fyrir og sá um úrvinnslu niðurstaðna.

Þau fyrirtæki sem uppfylltu skilyrði um lágmarkssvörun og tryggðu öllu starfsfólki sínu þátttökurétt (ekki aðeins VR félaga) komu til greina í vali á Fyrirtæki ársins og voru um 150 talsins. Auk fyrirtækja ársins voru viðurkenningar veittar til fimmtán efstu fyrirtækjanna í hverjum stærðarflokki og voru þau útnefnd Fyrirmyndarfyrirtæki 2026.

Þá voru tvenn aukaverðlaun veitt. Þrjú fyrirtæki fengu nafnbótina Fjölskylduvænustu fyrirtækin 2026 og þrjú fyrirtæki hlutu Fræðsluviðurkenningu VR 2026.

Nánar má lesa um niðurstöður og sjá lista yfir fyrirtækin hér.