Almennar fréttir - 21.04.2026
Vilt þú hafa áhrif? Komdu í Ungliðaráð VR
VR leitar að ungu fólki í Ungliðaráð félagsins en kosið verður í ráðið í maí. Í Ungliðaráði sitja sex VR félagar á aldrinum 18 til 35 ára. Stjórn VR skipar þrjá en ungt félagsfólk kýs þrjá aðra. Nú leitum við að frambjóðendum en framboðsfrestur er til hádegis 28. apríl.
Hlutverk Ungliðaráðs VR er að sjá til þess að hagsmunir yngra fólks innan félagsins séu ávallt á dagskrá og að veita ungu félagsfólki tækifæri til að hafa áhrif. Fulltrúar í Ungliðaráði eiga sæti í trúnaðarráði VR, þau fá tækifæri til að sitja þing Alþýðusambandsins og Landssambands ísl. verzlunarmanna og eru ráðgefandi fyrir stjórn VR. Greitt er fyrir fundarsetu í Ungliðaráði.
Hér má sjá nánari upplýsingar um hvernig á að bjóða sig fram.
Við hvetjum ungt félagsfólk til að taka þátt í að móta eigin framtíð á vinnumarkaði og bjóða sig fram til Ungliðaráðs VR.