Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
Undirritun 12.12 2022

Almennar fréttir - 12.12.2022

Nýr kjarasamningur kynntur á félagsfundi VR

VR skrifaði undir kjarasamning við Samtök atvinnulífsins í dag, mánudaginn 12. desember 2022. Samningurinn gildir frá 1. nóvember síðastliðnum til 31. janúar 2024..

Samningurinn felur í sér launahækkun upp á 6,75% frá 1. nóvember þó að hámarki 66.000 kr. Hagvaxtarauka sem átti að koma til greiðslu á næsta ári er flýtt og er hluti af þessari launahækkun.

Umtalsverðar breytingar verða gerðar á launatöflu VR, nýir launataxtar gilda frá 1. nóvember. Desember- og orlofsuppbætur hækka.

Sjá PDF af kjarasamningnum hér.

Félagsfundur miðvikudaginn 14. desember

VR boðar til félagsfundar til að kynna kjarasamninginn. Fundurinn verður haldinn í salnum Háteig á Grand hótel miðvikudaginn 14. desember kl. 20:00

Fundinum verður streymt á Mínum síðum á vr.is. Félagsfólk skráir sig inn á Mínar síður með Íslykli eða rafrænum skilríkjum. Túlkun á ensku verður einungis í boði í streymi.

Við hvetjum allt félagsfólk VR til að mæta eða fylgjast með í streymi.