Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
vr_adalfundur_2018-1.jpg

Almennar fréttir - 07.02.2019

Varst þú að missa vinnuna?

Fundur þessi eru hugsaður fyrir þá félagsmenn sem hefur verið sagt upp að hálfu atvinnurekenda. Farið verður yfir praktísk atriði sem tengjast uppsögnum s.s. réttarstöðu einstaklings gagnvart starfslokum af þessu tagi, atvinnuleysissjóð og atvinnuleit.

Leiðbeinendur: Sérfræðingar á kjaramálasviði VR og Jóhann Ingi Gunnarsson, sálfræðingur

Sérfræðingar af kjaramálasviði VR fara yfir réttarstöðu einstaklings gagnvart starfslokum af þessu tagi, umsóknarferli gagnvart atvinnuleysissjóð og nokkur praktísk atriði fyrir atvinnuleitina.
Þá mun Jóhann Ingi Gunnarsson, sálfræðingur, fjalla um hvernig megi vinna með og breyta viðhorfum okkar og venjum til að ná fram okkar besta þegar máli skiptir.
Lögð verður áhersla á gagnlegar aðferðir til að takast á við breytingar við krefjandi aðstæður. Fræðslan verður í formi fyrirlesturs og umræðna í bland.

Jóhann Ingi Gunnarsson hefur áratugareynslu af klínískri vinnu með einstaklinga auk þess sem hann hefur haldið fjölda námskeiða og fyrirlestra fyrir fyrirtæki og stofnanir bæði hér heima og erlendis. Einnig má nefna að hann hefur lengi starfað á vettvangi íþrótta, t.d. sem landsliðsþjálfari ásamt því að vera andlegur styrktarþjálfari margra af okkar fremstu íþróttamönnum.

Fundurinn verður haldinn 12. febrúar kl. 16:00-17:30 í sal VR á 0. hæð í Húsi verslunarinnar og tekur um eina og hálfa klukkustund.

Smelltu hér til þess að skrá þig.