Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
mynd.jpg

Almennar fréttir - 01.02.2019

Vilt þú starfa í forystu VR?

Samkvæmt 20. gr. laga VR auglýsir kjörstjórn félagsins eftir einstaklingsframboðum til formanns og í stjórn félagsins og listaframboðum í trúnaðarráð.
Framboðsfrestur er til kl. 12.00 á hádegi, mánudaginn 11. febrúar 2019.

Um er að ræða annars vegar einstaklingsframboð til formanns, til sjö sæta í stjórn og þriggja til vara. Skrifleg meðmæli 50 félagsmanna þarf vegna einstaklingsframboðs til formanns og 15 þarf vegna einstaklingsframboðs til stjórnar og varastjórnar. Hins vegar er um að ræða listaframboð fyrir 41 sæti í trúnaðarráð. Til að listi vegna trúnaðarráðs sem borinn er fram gegn lista uppstillingarnefndar sé löglega fram borinn þarf skrifleg meðmæli 352 félagsmanna sem og skriflegt samþykki frambjóðenda á listanum.

Frambjóðendum er bent á kosningasíðu á vef VR, þar sem eyðublöð vegna framboða eru aðgengileg og ítarlegri upplýsingar birtar um framboð til formanns, stjórnar og trúnaðarráðs. Kjörstjórn VR veitir einnig frekari upplýsingar í síma 510 1700 eða með tölvupósti til kjorstjorn@vr.isFramboðum og framboðslistum skal skilað til kjörstjórnar á skrifstofu VR, Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7.

1. febrúar 2019
Kjörstjórn VR.