Taktu þátt!

Nú er könnun VR á Fyrirtæki ársins hafin!

Með þátttöku í könnun VR á vali á Fyrirtæki ársins leggur þú þitt af mörkum í baráttunni fyrir betra starfsumhverfi.

Könnun VR á Fyrirtæki ársins er hafin og þú getur tekið þátt á Mínum síðum á vr.is. Einnig fær allt félagsfólk sem starfandi er á vinnumarkaði hana senda í tölvupósti. Þá getur allt starfsfólk yfir 150 fyrirtækja einnig tekið þátt, óháð stéttarfélagsaðild, en þessi fyrirtæki tryggja öllu starfsfólki sínu þátttökurétt. Könnunin stendur til miðnættis þann 17. mars.

Ef þú telur þig hafa rétt á að taka þátt í könnuninni en hefur ekki aðgang að Mínum síðum, hafðu samband við okkur í gegnum netfangið vr@vr.is.

Við hvetjum þig til að taka þátt og láta í þér heyra!

Yfir 100 vinningar í boði fyrir þau sem taka þátt!

Aðalvinningar - Dregið þegar könnun lýkur

  • 3 x iPhone 14
  • 2 x 2 hátíðarpassar á Þjóðhátíð ásamt gistingu í orlofshúsum VR í Vestmannaeyjum yfir Verslunarmannahelgina 2023
    (Á aðeins við um félagsfólk VR)

Aukavinningar - Dregið um leið og þú hefur lokið að svara könnun

  • 100 YAY gjafabréf, hvert að upphæð 20.000 kr.


Fyrirtæki ársins 2023

Í tengslum við könnunina eru svo tilnefnd 15 fyrirtæki sem Fyrirtæki ársins hvert ár, fimm í hverjum stærðarflokki (sjá nánar hér um framkvæmdina). Niðurstöður eru birtar á vef VR í maí.