Vefspjall
Hleður upp...
Untitled Design (8)

Almennar fréttir - 05.05.2026

Kosningar í Ungliðaráð VR

Kosningar þriggja fulltrúa í Ungliðaráð VR eru hafnar og standa til kl. 12:00 á hádegi föstudaginn 8. maí. Samkvæmt starfsreglum ráðsins sitja 6 aðilar í ráðinu, stjórn VR skipar þrjá en félagsfólk 35 ára og yngra kýs þrjá.
 
Aðgangur að rafrænum atkvæðaseðli hefur verið sendur til kosningabærra félaga með skráð netföng hjá VR. Félagsfólki sem ekki fær sendan aðgang að rafrænum atkvæðaseðli en telur sig eiga rétt á að kjósa, er bent á að senda erindi þess efnis til unglidarad@vr.is.