Vr Fyrirtaeki Arsins 2023

Almennar fréttir - 10.05.2023

Fyrirtæki ársins 2023 kynnt í Hörpunni

Niðurstöður í könnun VR á Fyrirtæki ársins 2023 voru kynntar við hátíðlega athöfn í Hörpu miðvikudaginn 10. maí. Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, og Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, afhentu viðurkenningarnar til fyrirtækja í þremur stærðarflokkum.

Þau fyrirtæki sem skáru fram úr og hljóta nafnbótina Fyrirtæki ársins 2023 eru:

Í flokki lítilla fyrirtækja, þar sem starfa færri en 30:

  • Farmers Market
  • Íslensk getspá
  • Kringlan
  • M7
  • Tryggja

Í flokki meðalstórra fyrirtækja, þar sem starfa 30-69:

  • Dohop
  • Expectus
  • Reykjafell
  • Toyota
  • Travel Connect

Í flokki stórra fyrirtækja, þar sem starfa fleiri en 70:

  • NetApp
  • Nova
  • Opin kerfi
  • Orkan
  • TK bílar

Könnun VR á Fyrirtæki ársins náði til alls félagsfólks VR auk fjölda annarra á almennum vinnumarkaði og er umfangsmesta vinnumarkaðskönnun á Íslandi. Könnunin í ár var jafnframt sú stærsta sem VR hefur látið gera til þessa. Gallup lagði könnunina fyrir og sá um úrvinnslu niðurstaðna.

Þau fyrirtæki sem uppfylltu skilyrði um lágmarkssvörun og tryggðu öllu starfsfólki sínu þátttökurétt (ekki aðeins VR félaga) komu til greina í vali á Fyrirtæki ársins og voru þau 155 talsins. Auk fyrirtækja ársins voru viðurkenningar veittar til þeirra fimmtán efstu fyrirtækja í hverjum stærðarflokki og voru þau útnefnd Fyrirmyndarfyrirtæki 2023. Þá voru sérstök aukaverðlaun veitt í fyrsta skiptið, þegar þrjú fyrirtæki fengu nafnbótina Fjölskylduvænustu fyrirtækin 2023.

Nánar má lesa um niðurstöður og sjá lista yfir fyrirtækin hér.