Almennar fréttir - 30.04.2026
Við krefjumst!
VR, LÍV og Fagfélögin hafa tekið höndum saman og ávarpa stjórnvöld, sveitarfélögin og fyrirtækin í landinu í nýrri auglýsingaherferð. Allt stefnir í að kjarasamningar losni í haust, með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Launafólk hefur borið hitann og þungan af þrálátri verðbólgu, háum stýrivöxtum og vaxandi atvinnuleysi. Allt hækkar og hækkar – og launafólk fær ekki rönd við reist.
Félögin krefjast þess að allir leggi sitt af mörkum til að leiðrétta stöðuna – fyrirtækin sem ráða hér verðmyndun, stjórnvöld sem hafa í hendi sér að grípa inn í húsnæðismálin og sveitarfélögin sem eiga að leiðrétta gjaldskrár sínar. Við krefjumst þess að staðið verði við loforðin. Þetta eru kröfurnar:
Arðsemiskrafa stórfyrirtækja lækki
Stóru fyrirtækin í landinu — þar á meðal heildsalar, smásalar og fjármálafyrirtæki — sem hafa verðmótandi áhrif lækki arðsemiskröfu sína í að minnsta kosti tvö ár.
Gjaldskrár leiðréttar og leikskólar varðir
Við krefjumst þess að nýlegar gjaldskrárhækkanir sveitarfélaga, einkum á hita, rafmagni og leikskólagjöldum, verði dregnar til baka og að gjaldskrár hins opinbera verði frystar út gildistíma kjarasamninga. Sveitarfélög verða að láta af atlögu sinni að almennum leikskólum.
Verðhækkanir á innlendri vöru stöðvaðar
Orsakir verðhækkana á innlendri matvöru verði greindar og ráðist í aðgerðir til að stöðva þær.
Barna- og húsnæðisbætur
Koma þarf til móts við þá hópa sem bera þyngstu byrðarnar í ríkjandi efnahagsástandi með barnabótum, húsnæðisbótum og vaxtabótum. Bætur þurfa að halda í við verðlag.
Raunhæfar tillögur í húsnæðismálum
Ríki og sveitarfélög taki höndum saman og komi á stöðugleika í húsnæðismálum. Stöðva þarf brask með lóðir og sjá til að Bjarg fái byggingarhæfar lóðir nú þegar og í framtíðinni.