Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
rvk-3.jpg

Efnahagsyfirlit - 13.11.2017

Efnahagsyfirlit VR - Eldri starfsmenn hafa setið eftir

Starfsmenn á vinnumarkaði 55 ára og eldri hafa setið eftir þegar kemur að þeirri miklu fjölgun starfa sem einkennt hefur íslenskan vinnumarkað á síðustu árum, einkum konur. Þetta má sjá með því að skoða falið atvinnuleysi og þróun þess síðustu ár. Falið avinnuleysi tekur til þeirra sem eru án vinnu en teljast ekki atvinnulausir eða eru í hlutastarfi en vilja vinna meira. Um þetta er fjallað í nýjasta Efnahagsyfirliti VR.

Atvinnuleysi jókst mikið strax eftir hrun en hefur lækkað jafnt og þétt síðan og er nú svipað og á árunum 2006 – 2007. Falið atvinnuleysi jókst líka mikið strax eftir hrun en hefur hins vegar lítið lækkað síðan. Helsta ástæða þess er falið atvinnuleysi kvenna 55 ára og eldri sem er 7% í dag en var að meðaltali 3-4% fyrir hrun. Falið atvinnuleysi karla á þessum aldri var 2% fyrir hrun en er núna 4%. Það er því ljóst að konur á vinnumarkaði 55 ára og eldri hafa ekki tekið þátt í þeim uppgangi sem ríkt hefur á vinnumarkaði síðustu ár til jafns við aðra.