Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
rvk-3.jpg

Efnahagsyfirlit - 18.10.2017

Efnahagsyfirlit VR - Hvenær er hægt að lækka vexti á Íslandi?

Því hefur verið haldið fram að vextir á Íslandi séu svo miklu hærri en í nágrannalöndum okkar af því að efnahagsástandið hér er svo gott. Það hlýtur að fela í sér að þegar illar árar séu vextir lægri. Nánari skoðun sýnir hins vegar annað. Í nýjasta Efnahagsyfirliti VR kemur fram að vextir á Íslandi voru mun hærri hér á landi árið 2011 en þeir eru í nágrannalöndum okkar nú - sem standa nánast í sömu sporum og við fyrir sex árum.

Hagvöxtur á Íslandi árið 2011 var í takt við hagvöxt samanburðarlandanna árið 2016. Atvinnuleysi að meðaltali fyrstu átta mánuði ársins 2017 í löndunum er í takt við meðal atvinnuleysi á Íslandi fyrstu átta mánuði ársins 2011. Verðbólga fyrstu átta mánuði ársins var þó hærri á Íslandi árið 2011 samanborið við verðbólgu árið 2017 í samanburðarlöndunum. Skammtímavextir í Noregi, Svíþjóð, Danmörku og í Evrulöndunum eru þó umtalsvert lægri en vextir voru á Íslandi árið 2011. Niðurstaðan er einföld: ef vextir eiga að fylgja efnahagsástandinu er ljóst að þeir hafi verið allt of háir á Íslandi árið 2011. Er nema von að fólk spyrji hvenær hægt sé að lækka vexti á Íslandi?