Stytting vinnuvikunnar

Vinnutímastytting tekur gildi 1. janúar 2020

Samið var um 9 mínútna vinnutímastyttingu á dag alla daga vikunnar fyrir starfsmann í fullu starfi sem eru 45 mínútur á viku eða 3 klst. og 15 mínútur á mánuði, án skerðingar launa.  VR gerir samninga bæði við Samtök atvinnulífsins (SA) og Félag atvinnurekenda (FA) og er sama breyting á vinnutíma félagsmanna VR hvort sem farið sé eftir kjarasamningi VR og SA eða kjarasamningi VR og FA.

Útfærsla styttingarinnar er í höndum hvers vinnustaðar fyrir sig og verður að liggja fyrir þann 1. desember nk. með hvaða hætti vinnustyttingin kemur til framkvæmdar.

Er þetta skref í átt að því að stuðla að betra jafnvægi milli vinnu og einkalífs, gera vinnumarkaðinn fjölskylduvænni og auka lífsgæði félagsmanna.

Framkvæmd

Vinnutímastytting tekur gildi 1. janúar 2020. Atvinnurekendur skulu hafa samráð við launamenn um
tillögu að útfærslu vinnutímastyttingar á grundvelli eftirfarandi valkosta:

a) Hver dagur styttist um 9 mínútur, starfsmaður styttir vinnudaginn 9 mínútur á hverjum degi og fer fyrr heim sem því nemur, á óbreyttum kjörum.
b) Hver vika styttist um 45 mínútur eða styttingunni safnað upp með öðrum hætti, til dæmis á 2ja vikna fresti eða mánaðarlega.
c) Safnað upp innan ársins, um það bil fjórir og hálfur dagur, 
d) Vinnutímastyttingu með öðrum hætti, á óbreyttum kjörum/launum.

Samkomulag skal hafa náðst um framkvæmd vinnutímastyttingar fyrir 1. desember 2019.
Ef samkomulag næst ekki styttist vinnutími um 9 mínútur á dag miðað við fullt starf.

Skrifstofufólk:

Dæmi um útfærslu innan fyrirtækis: Styttri viðvera hvern dag

 

Dæmi um útfærslu innan fyrirtækis: Óbreytt viðvera nema einn dag í viku

Afgreiðslufólk:

Dæmi um útfærslu innan fyrirtækis: Styttri viðvera hvern dag

Dæmi um útfærslu innan fyrirtækis: Óbreytt viðvera nema einn dag í viku

Stytting vinnuvikunnar með niðurfellingu kaffitíma

Möguleiki er einnig fyrir hendi að stytta vinnuvikuna enn frekar með því að fella niður kaffitíma. Slíkt þarf alltaf að gera í fullu samráði við atvinnurekendur.

Kaffitímar hjá afgreiðslufólki eru 35 mín. á dag og hjá skrifstofufólki 15 mín. á dag.

 

Skrifstofufólk

Ef kaffitímar eru felldir niður að fullu er hægt að stytta vinnuvikuna hjá skrifstofufólki:

  • um 2 klst á viku 
  • eða 8,67 tíma á mánuði (8 klst. og 40 mínútur)
  • eða 94,8 tíma á ári (94 klst. og 48 mínútur)
  • eða 13,35 daga á ári.

Dæmi um útfærslu innan fyrirtækis: Óbreytt viðvera nema einn dag í viku án kaffitíma

Dæmi um útfærslu innan fyrirtækis: Styttri viðvera hvern dag án kaffitíma 

Afgreiðslufólk

Ef kaffitímar eru felldir niður að fullu er hægt að stytta vinnuvikuna hjá afgreiðslufólki:

  • Um 3 klst. og 40 mínútur á viku (0,73 ef reiknað í hundraðshlutum)
  • eða 15,50 klst á mánuði, (15,82 ef reiknað í hundraðshlutum)
  • eða 173,01 tíma á ári eða 24 dagar á ári.

Dæmi um útfærslu innan fyrirtækis: Styttri viðvera hvern dag án kaffitíma

Ef kaffitími hjá afgreiðslufólki væri styttur úr 35 mín. í 20 mín. gæti styttingin verið:

  • 2 klst. á viku
  • eða 8,67 tímar á mánuði, (8 klst. og 40 mínútur)
  • eða 94,8 tímar á ári (94 klst. og 48 mínútur)
  • eða 13,22 dagar á ári.

Dæmi um útfærslu innan fyrirtækis: Styttri viðvera hvern dag, kaffitími 20 mínútur