Aðalfundur deildar leiðsögufólks í VR verður haldinn miðvikudaginn 21. október nk. kl. 19:00 í fundarsal VR á 9. hæð í Húsi verslunarinnar. Fundurinn fer fram bæði sem staðfundur og fjarfundur í senn.
Félagsfólk sem ætlar að sækja fundinn verður að skrá sig fyrirfram á vef VR fyrir kl. 12:00 á hádegi á fundardegi og skrá sig annað hvort á stað- eða fjarfund.
Skráning á fundinn er liðinn.
Athugið: til að vera gjaldgengur á fundinn þarf félagi að vera fullgildur og skráður í deild leiðsögufólks hjá VR.
Öll fundargögn verða rafræn.
Framboð til formanns og stjórnar
Einn hefur boðið sig fram til formanns stjórnar deildar leiðsögufólks í VR:
Halldór Kolbeins
Tvær hafa boðið sig fram til stjórnarmanna í deild leiðsögufólks í VR:
Boga Kristín Kristinsdóttir
Heiðrún Hauksdóttir
Breytingar á starfsreglum
Á dagskrá fundarins eru tillögur að breytingum á starfsreglum deildarinnar. Tillögur að breytingum á starfsreglum þurfa að hafa borist til stjórnar deildarinnar sjö dögum fyrir aðalfund eða í síðasta lagi kl. 12:00 miðvikudaginn 14. október á netfangið guide@vr.is.
Dagskrá aðalfundar skv. starfsreglum
- Kosinn fundarstjóri
- Kosinn ritari
- Skýrsla stjórnar um störf deildarinnar fyrir liðið starfsár
- Breytingar á starfsreglum
- Kjör stjórnar skv. 4. gr.
- Fjárhagsáætlun deildarinnar lögð fram
- Önnur mál