Framtíðarnefnd VR

VR vill að félagsmönnum sé tryggt öruggt atvinnuumhverfi í framtíðinni. Félagið stefnir markvisst að því að hafa áhrif á þróun vinnumarkaðarins til framtíðar og koma í veg fyrir að stórar breytingar á vinnumarkaði geti skert hagsmuni félagsmanna. VR sér tækifæri í breytingum í tækni og viðskiptaumhverfi og lítur þær jákvæðum augum.