Vefspjall
Hleður upp...

Langvarandi vaxtaverkir

Málþing um áhrif stýrivaxta á fólk og fyrirtæki

Í tæp fjögur ár hafa stýrivextir verið mjög háir á Íslandi. Markmið hávaxtastefnunnar hefur verið að draga úr verðbólgu og koma henni að 2,5% verðbólgumarkmiði Seðlabankans. Þrátt fyrir langvarandi háa stýrivexti hefur það ekki gengið eftir og undanfarið ár hefur verðbólga farið hækkandi. Háir stýrivextir hafa margvísleg áhrif á bæði fólk og fyrirtæki. Þeir koma harðast niður á fólki með húsnæðisskuldir, leigjendum og barnafólki og gera að verkum að stéttarfélög þurfa að sækja frekari launahækkanir til að mæta óhóflegum húsnæðiskostnaði launafólks. Þeir valda atvinnuleysi og standa í vegi fyrir húnsæðisuppbyggingu og mikilvægum fjárfestingum fyrirtækja. Þess vegna er tímabært að staldra við og velta því upp hvort hávaxtastefnan þjóni tilgangi sínum.  

VR, LÍV og Fagfélögin boða til opins fundar um samspil stýrivaxta og verðbólgu. Lykilfyrirlesari er Jaya Sood, hagfræðingur hjá New Economics Foundation í Bretlandi, og mun hún fjalla um kosti og galla stýrivaxta sem stjórntæki til að ná tökum á verðbólgu. Að loknu erindi Sood fara fram umræður.

Fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 19. ágúst nk. milli 11:00 og 12.30 í húsnæði VR, Kringlunni 7 (9. hæð) og fer fram á ensku og íslensku. Boðið verður upp á túlkun. Húsið opnar kl. 10:30 með léttum veitingum.

Fundurinn er öllum opinn, skráning að neðan.

Dagskrá

  • Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, setur fundinn.

  • Jakob Tryggvason, formaður RSÍ, flytur stutt ávarp.
  • Jaya Sood: „Eru háir stýrivextir alltaf besta svarið? Ólíkar leiðir í baráttunni við verðbólgu". Opnað verður fyrir spurningar úr sal að erindi loknu. 
  • Halla Gunnarsdóttir ræðir við þá Ásgeir Brynjar Torfason, ritstjóra Vísbendingar og Jón Sigurðsson, forstjóra Stoða.

Fundinum verður jafnframt streymt á visir.is.