Vefspjall
Hleður upp...

Styrkir

Í Sjúkrasjóð VR getur félagsfólk sótt styrk vegna glasafrjóvgunar. Sjá nánari upplýsingar varðandi styrkina hér að neðan. Athugið að styrkir úr Sjúkrasjóði eru ekki veittir til líkamsræktar (sjá um VR varasjóð).

Greiðslukvittun þarf að fylgja umsókn og má vera allt að 12 mánaða. Greiðslukvittun verður að vera með stimpli viðkomandi fyrirtækis og nafni og kennitölu VR félaga.

Greiðslur úr sjóðnum eru almennt staðgreiðsluskyldar og er staðgreiðsla dregin af fjárhæð fyrir útborgun. Staðgreiðsla skatta er tekin af styrkupphæð úr Sjúkrasjóði VR, skv. skattþrepi 1. Við viljum benda félagsfólki, sem er með mikinn kostnað vegna veikinda, á að möguleiki er að sækja um lækkun á staðgreiðslu hjá RSK.
- Sjá nánar hér.

Styrkir vegna glasafrjóvgunar

VR veitir fullgildu félagsfólki sínu styrk vegna glasafrjóvgunar / tæknifrjóvgunar og ættleiðingar. Styrkurinn er að hámarki 250 þúsund krónur fyrir hvern VR félaga. Hægt er að sækja um oftar en einu sinni þar til að hámarksupphæð er náð. Iðgjöld þurfa að hafa borist í 6 mánuði samfellt fyrir upphafsdag meðferðar eða greiðslu ættleiðingarþjónustu sem sótt er um.

Athugið:
- Styrkurinn er staðgreiðsluskyldur.
- Ef sótt er um kostnað erlendis þarf greiðslustaðfesting úr íslensku bankakerfi (um millifærslu/kortagreiðslu) að fylgja.

VR varasjóður

Félagsfólk VR hefur aðgang að eigin sjóði, VR varasjóði, sem gefur þeim meira frjálsræði og meiri sveigjanleika. Í varasjóðinn renna þeir fjármunir sem áður voru notaðir til styrkja af ýmsu tagi úr Sjúkrasjóði s.s. til líkamsræktar eða gleraugnakaupa og tiltekinn hluti af iðgjöldum í orlofssjóð.