Siglufjörður

Vaktsími umsjónarmanns er 861 6960.

Komu- og brottfarartímar

  • Vetrartímabil orlofshúsa VR er frá 31. ágúst til 28. maí. Komutími er kl. 16:00 og brottför kl. 12:00 nema sunnudaga kl. 19:00.
  • Sumartímabilið er frá 29. maí. til 30. ágúst. Komutími er kl. 17:00 og brottför kl. 12:00 nema sunnudaga kl. 19:00.

Umgengnisreglur í orlofshúsum VR

  • Húsið er leigt með húsgögnum, eldhúsbúnaði og öðrum lausamunum.
  • Leigjandi ber ábyrgð á öllum búnaði hússins meðan á leigutíma stendur og skuldbindur sig til þess að bæta tjón, sem verða kann af hans völdum eða þeirra sem dveljast á hans vegum í húsinu á leigutíma.
  • Leigjandi skal ganga vel um hús og umhverfi, ræsta húsið við brottför og sjá um að hver hlutur sé á sínum stað. Sjá gátlista á vegg.
  • Leigjandi skal koma til dvalar í húsinu á skiptidegi (nánar í leigusamningi).
  • Leigjandi þarf að hafa með sér handklæði, sápu, viskastykki, sængurver, lök og koddaver.
  • Dvalargestir eru beðnir um að forðast hávaða með bílaumferð á orlofshúsasvæðinu.
  • Leigjandi skal ganga vel um staðinn og gæta þess að spilla ekki gróðri eða landi á nokkurn hátt.

Sjá nánar um orlofshús VR á Norðurlandi hér.

Upplýsingar um afþreyingu á Norðurlandi er að finna á www.visitakureyri.is.