Reykjavík - Sóltún

Vaktsími umsjónarmanns er 777 4434.

Komu- og brottfarartímar 

  • Íbúðin er til afnota um helgar og á virkum dögum. Komutími kl. 16:00 og brottfarartími kl. 11:00, en á sunnudögum er brottfarartími kl. 16:00 og komutími kl. 17:00. 

Umgengnisreglur í orlofshúsum VR

  • Húsið er leigt með húsgögnum, eldhúsbúnaði og öðrum lausamunum.
  • Leigjandi ber ábyrgð á öllum búnaði hússins meðan á leigutíma stendur og skuldbindur sig til þess að bæta tjón, sem verða kann af hans völdum eða þeirra sem dveljast á hans vegum í húsinu á leigutíma.
  • Leigjandi skal ganga vel um hús og umhverfi, ræsta húsið við brottför og sjá um að hver hlutur sé á sínum stað. Sjá gátlista á vegg.
  • Leigjandi skal koma til dvalar í húsinu á skiptidegi (nánar í leigusamningi).
  • Leigjandi þarf að hafa með sér handklæði, sápu, viskastykki, sængurver, lök og koddaver.
  • Dvalargestir eru beðnir um að forðast hávaða með bílaumferð á orlofshúsasvæðinu.
  • Leigjandi skal ganga vel um staðinn og gæta þess að spilla ekki gróðri eða landi á nokkurn hátt.

Sjá nánar um orlofskosti VR í Reykjavík hér.

Upplýsingar um afþreyingu í Reykjavík er að finna á www.visitreykjavik.is