Á listum yfir Fyrirtæki ársins 2020 eru 130 fyrirtæki sem eru stjörnumerkt. Þessi merking þýðir að fyrirtækið hafi tryggt öllum starfsmönnum sínum þátttökurétt í könnuninni, óháð því hvort viðkomandi starfsmaður er í VR eða ekki og óháð starfshlutfalli viðkomandi. Þetta er 72% af fjölda fyrirtækja sem komst á lista. Auk þess bauð eitt annað fyrirtæki starfsmönnum sínum utan VR þátttöku en það náði ekki lágmarki fyrir birtingu, sem er 35% svörun og tiltekinn fjöldi svara.

VR tók þá ákvörðun árið 2003 að gefa fyrirtækjum færi á að allir starfsmenn gætu tekið þátt í könnuninni. Möguleikinn á þátttöku alls starfsfólks eykur mjög notagildi könnunarinnar fyrir stjórnendur fyrirtækja, því fleiri sem taka þátt því betur endurspegla niðurstöðurnar afstöðu allra starfsmanna, ekki eingöngu félagsmanna VR á vinnustaðnum.

Við viljum líka benda á að hjá mörgum fyrirtæki á listum eru eingöngu félagsmenn VR án þess að þessi fyrirtæki séu stjörnumerkt. Stjörnumerking fæst eingöngu ef fyrirtæki tryggja starfsmönnum þátttökurétt, með því að senda inn beiðni um þátttöku til félagsins eða láta vita á annan hátt. Stjórnendur um eitt þúsund fyrirtækja á íslenskum vinnumarkaði fengu í upphafi árs sendan kynningarbækling þar sem þessi möguleiki var kynntur. Allir félagsmenn VR fá senda könnun og er það fyrirtækjum að kostnaðarlausu. Þátttaka annarra starfsmanna felur hins vegar í sér kostnað fyrir fyrirtækin.

Hér er listi yfir þau fyrirtæki sem buðu öllum starfsmönnum þátttöku í könnun VR í ár og náðu inn á lista til birtingar. Listinn er hér birtur í stafrófsröð.

1819 - Nýr valkostur
1912
66° Norður/ Sjóklæðagerðin
A4 / Egilsson
Aðalskoðun
Allianz
Alþýðusamband Íslands
Annata
Askja bílaumboð
Attentus - mannauður & ráðgjöf
Áltak
Árnason Faktor
Ásbjörn Ólafsson
Bandalag íslenskra skáta
Birta lífeyrissjóður
Birtingahúsið
Bitter (Parki)
Bílaleiga Flugleiga (Hertz)
BL
Blindrafélagið
Bókhald og uppgjör ehf.
Bókhald og þjónusta
Byko
CCP
Controlant
Cyren
Danól
Deloitte
dk hugbúnaður
Egill Árnason
Eignaumsjón
Eirvík
Epal
Ernst & Young
Eskimos
Expectus
Fastus
Ferðaþjónusta bænda
Félagsstofnun stúdenta
Fjárstoð
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins
Fulltingi
Garri
Gildi lífeyrissjóður
Globus
Godo
Hagvangur
Halldór Jónsson
Happdrætti Háskóla Íslands
Harpa, menningar- og ráðstefnuhús
Hlýja
Háskólinn á Bifröst
Hringdu
Hugsmiðjan
Hvíta húsið
Höldur
Iceland Pro Services
Icepharma
Iðan fræðslusetur
Ikea
Íslandsstofa
Íslensk getspá
Johan Rönning
Katla

Kraftvélar
Leikfélag Reykjavíkur
Linde / Ísaga
Lífeyrissjóður verzlunarmanna
Ljósið
LS Retail
Lyfja
Lyfjaver
Lögheimtan
MAGNA lögmenn
Margt smátt
Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum
Miðlun
Mímir
Motus
Netorka
Nordic Visitor
Nova
Nox Medical
Opin kerfi
Optima
ORF Líftækni
Origo
Orka
Parlogis
PwC
Rammagerðin
Rauði krossinn
Reitir
Rekstrarfélag Kringlunnar
Reon
Reykjafell
Ritari
Rúmfatalagerinn
S4S
Saga film
Samhjálp
Securitas
Sena
Sjóvá
Sporthúsið (Sporthöllin)
Stef
Sýn
Tandur
Tempo
Tengi
Terra Nova
Thor Shipping
Toyota á Íslandi
Toyota Kauptúni
TRS
Tryggja
TVG Zimsen
Valka
Verkís
Verslunartækni & Geiri
Vettvangur
VIRK starfsendurhæfingarsjóður
VÍS
VSB verkfræðistofa
Vörður tryggingar
Wise
World class / Laugar
Þekking - Tristan
Ölgerðin